27.08.2006 21:16:47 / Kristín

Ég auglýsi eftir...

Einu stykki Lilju....

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 13:05:20 / Gugga

ef þið hafið..

.. rekist á rautt lancome naglalakk í fórum ykkar þá yrði ég himinlifandi að fá það aftur því ég elska það.

!Ŧ̈ㅘϝ㌥╂䈳┷䄳┹䘷汨桮㌥╃䔳㌥潄晱潣牪睵㌥汄摯桩牴睱㌥杄㑯┲䌳十督╪〴㌥潄╴䔳㌲㤶㌥╄䄳㠸㌥╄䄳┵䌳㌥塄佒䑑╆䔳㌲㐲㔸㠸㌥㙁㠲漲ㅴ獬䉩睕畱橣䙧潧兮灣╧〴灦㌳㌥B ē̌

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 07:57:14 / Kristín

Símanúmer á meðan við erum að heiman...

Aparthotel Martinique
Tirso de Molina 1
07182 Magalluf

Mallorca

Spain
Tel: 0034-971130994

Sjjjeeeeennnst.. :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 13:32:03 / Gugga

Á MORGUN!

jæja stúlkur. þá er komið að því. annar ágúst er mættur og þriðji er á morgun! ég man þegar við vorum sjúklega að pæla, fyrir svona 200 dögum, bara "ómægod hvernig verður þetta annan ágúst, við eigum pottþétt ekkert eftir að geta sofnað um kvöldið.. ómægod þá förum við bara á morgun!" og nú er þessi dagur kominn! ég held ennþá að ég eigi ekkert eftir að geta sofið í nótt..! ég er svo spennt sko! vááá

ég var að skrifa diska áðan þannig að to bad for yuuuu ef þið þráið eitthvað lag sem er ekki á þeim ;)

mig langar líka að minna ykkur á að koma með allt glimmer sem þið finnið heima hjá ykkur :) getur líka einhver komið með töflutúss?

munið líka eftir pössunum ykkur og bikiníunum og KHRISTINE!! mund þú eftir MIÐUNUM!! dúlla..!

ég er farin í fótsnyrtingu, sem á eftir að vera mjög erfið því eins og þið vitið þá hata ég tær og mér finnst mjög erfitt þegar aðrir koma við mínar! (ég held samt að ég sé alveg að komast yfir þetta... ég vona það!)

SÍJA!


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 16:22:54 / Gugga

ekki á morgun heldur hinn!!

dúllur! stóra stundin er að renna upp! og þess vegna ætla ég að drulla mér að fara að skrifa diska og til þess að ég geti það þá þurfið þið að segja mér hvaða lög þið viljið.

ef einhver á sigur rósar diska, nennir þá sá hinn sami að pakka þeim niður og taka þá með til átlends? allt sem ég á með sigur rós er nefnilega inná iPod-num og ég get ekki skrifað það á disk BÖMMER!

ég held að það sé þá ekki fleira í bili, ég fór bara allt í einu að hugsa útí þetta þegar ég lá útí garði að tana ;) smá upphitun í gangi :) en þið megið endilega hringja, senda sms, msn, e-mail, mms, nmt, gprs.. nei nú er ég að missa mig.. gleymum allavega nmt og gprs, ok? en þið megið senst gera allt hitt, nú eða jafnvel koma í heimsókn barasta.. ég hef 100% ekkert að gera!

en núna ætla ég að tana meira og jafnvel slá blettinn og svona.. ég er orðin svo fær í því eftir sumarið sjáiði til..

já hey, eitt annað, Ísabella var að stinga uppá því að girlies og backseatgirls myndu taka eitt svona "girls-night-out" demm þarna úti.. what you say?

en tanið kallar.. BÆ!


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 09:58:46 / Lilja

get ekki kommentað :(

Ég blogga hér stutt blogg þar sem ég get ekki kommentað. En þarna, með að skrifa diska. Ég kann það ekki baun í bala, plús, ég á enga diska. En það er ekkert mál fyrir mig að downloada lögum, ef einhver gæti komið til mín með diska og kennt mér að skrifa þá. Ójé.

» 11 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 19:21:39 / Gugga

Malloooorca..!

skýrslan síðan á fundinum á prikinu um daginn:

  1. skrifa diska - Baldur&Lilja
    - allar að skrifa lista
  2. Redda í ríkið fyrir rútu
  3. Töflutúss
  4. alltaf að eiga klaka

merkilegt..!

smyrjið hundinn og commentið ef þið þráið að koma fleiru á framfæri.. og svo þurfum við að hittast ehagi?

ætliði á sigur rós á morgun dúllur? ég þrái að fara með einhverri af ykkur, nú eða bara öllum!

síja!


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 11:10:00 / Lilja

Það rignir kannski hjá okkur.

En ég er fegin að búa ekki í Pheonix þar sem er sól.

Tveir fjöldamorðingjar virðast vera í keppni í Phoenix

Íbúar í borginni Phoenix í Arizona eru óttaslegnir en svo virðist sem tveir morðingjar séu í einskonar keppni hvor við annan í borginni. Talið er víst að morðingjarnir tveir hafi myrt að minnsta kosti þrettán manns og nauðgað og misþyrmt tugum til viðbótar. Skotið hefur verið á fórnarlömbin í biðskýlum, þar sem þau eru á ferð á hjólum eða að þvo bíla sína.

Lögreglan telur að rekja megi upphaf þessarar ofbeldisöldu til síðasta árs þegar nokkrir hestar og hundar fundust dauðir á víðavangi og höfðu verið skotnir. Fyrsta morðið var síðan framin í ágúst á síðasta ári.

Lögreglan taldi lengi vel að um einn mann væri að ræða, og var hann nefndur Baseline-morðinginn eftir hverfinu þar sem fyrsta morðið var framið. Síðan þá er maðurinn talinn hafa myrt að minnsta kosti sjö til viðbótar og nauðgað og rænt 20 að auki. Lögreglan sendi frá sér mynd, sem teiknuð var eftir lýsingum sjónarvotta og sýnir hún blökkumann með svonefnda „dreadlokka". Viðurkennt var hins vegar, að myndin kynni að vera ónákvæm því morðinginn klæddist mismunandi dulargervum.

Hinn morðinginn hefur nú verið nefndur raðmorðinginn. Hann virðist athafna sig óháð Baseline-morðingjanum og skýtur á dýr og fólk af handahófi út um bílglugga. Hann hefur myrt að minnsta kosti 5 manns.

Flestir íbúar Phoenix telja, að morðingjarnir tveir séu í einskonar keppni og þegar annar lætur til skarar skríða fylgir hinn í kjölfarið.

Þessir atburðir hafa haft mikil áhrif á mannlífið í Phoenix. Á sumrin er jafnan gífurlega heitt í borginni og fólk fer gjarnan í kvikmyndahús eða verslunarmiðstöðvar á kvöldin til að njóta loftkælingarinnar þar en í sumar hefur fólk haldið sig heima. Almenningur hefur keypt sér byssur og skotheld vesti og stofnaðir hafa verið varðsveitir óbreyttra borgara. Ástandið í Phoenix minnir að mörgu leyti á ástandið í Washingtonborg og nágrannaríkjunum árið 2002 þegar 10 manns voru skotnir til bana úr launsátri. Það mál upplýstist fyrir tilviljun og reyndust tveir menn hafa verið að verki.

Tekið af www.mbl.is.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 10:06:40 / Karen

...

Stelpur!!!

Ég er orðin lítil ára aftur...

Í gamla daga var ég skotinn í Peter Andre og mig dreymdi fyrsta kossinn minn á hverri nóttu... með honum. Í dag þá er ég ástfanginn af Jhonny Depp og á ófáar villtar nætur með honum þar sem hann tjáir mér ást sína. Vel gert Karen.

Í gamla daga hlakkaði ég svo mikið til jólanna að ég gat varla hugsað skýrt, ég hlóp um allt hús og talaði og talaði um pakkana og ísinn og jólatréð. - Í dag hleyp ég um allt hús talandi um stað sem heitir Mallorka og segi öllum sem heyra vill um þessa ferð mína (kúnnunum mínum í vinnunni líka, allir - allir fastakúnnarnir eru vel meðvitaðir um þessa ferð mína) ég elska að tala um sól og sand og kokteila og handklæði. Vel gert Karen.

Í gamla daga fannst mér best að sofa í eða með nýju hlutunum mínum... ég svaf til dæmis í nýju fínu barbí-strigakónum mínum, jólakjólnum mínum og fyrsta brjóstarhaldaranum þótt hann var sjúklega óþægilegur og mig klæjaði alla nóttina. Í dag langar mig meira en allt að sofa í bikíunum mínum og appelsínugula  Mallorca kjólnum mínum, ég stilli mig þó því annð finnst mér frekar afbrigðilegt. Vel gert Karen              

Í gamla daga var ekkert meira spennandi í heiminum en frostpinnar. Í dag eeelska ég froskaís - grænann. Vel gert Karen.

Í gamla daga pissaði ég í mig úti fyrir utan húsið mitt því ég nennti ekki að hætta að leika mér. í dag... ókei ég pissa ekki í mig en ég nenni ekki að hætta að leika mér...

 

Gott með þetta !!! Gaman að þessu !!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 00:22:16 / Kristín

Ferðin er að verða áþreifanleg..

Sérstaklega afþví ég get þreifað á flugmiðunum okkar!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 12:50:27 / Lilja

Kvennó partí

á að kíkja í RisaWelcomeHomeParty hjá manneskju sem maður þekkir ekki neitt?

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 12:27:55 / Karen

Karen er ein heima og það er bara svei minn stuð þar á bæ...

Ókei, þá er það ákveðið... ÞAÐ VERÐUR GAMAN NÆSTA FÖSTUDAGSKVÖLD...

Ég vildi bara smella þessu á síðuna, tala betur við ykkur hnátur. Málið er sem sagt að hittast heima hjá mér, skoða skápinn og vökva blómin... ég ætla ekkert að hafa þetta nei mega, bara rólegheit með okkur nokkrum... smá svona fíling bara...  

Gaman að þessu... svo sýnist mér við allar vera að virkjast á myspace, ég er að sökkva dýpra og dýpra... Kristín: þú þarft bara að taka þér tak.... :) Þá getum við hnátur farið að halda myspace hitting og ég veit ekki hvað og hvað, eða hvað?

Spurning hvort að föstudagskvöldið verði svona semí opnunarpartý fyrir blogspot... ég þrá þá síðu, hvað með ykkur?

Kommentið nú á þetta píur, við erum ekki nógu duglegar að stunda þann pakkann

;) Knúsar


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 09:05:08 / Lilja

lán í óláni

Gærkvöldið var ein besta huggun við að hafa ekki getað farið í Kvennó útileguna. Við erum að tala um að pían náði að redda sér og Karenu, ásamt 2 öðrum fögrum píum VIP armbönd á 90's No Limits kvöld Kiki-Ow og Bibba Curver á Ellefunni. Þessi fagur bleik appelsínugulu armbönd þýddu aðeins eitt á barnum: "Gemmér frían vodka í burn orkudrykk!" Get ekki sagt að ég hafi verið að hata það. Þó að ég hafi stungið af nokkuð snemma, vegna vinnu dagsins eftir náðum við Karen samt að drekka aaðeins of mikið, dansa einsog asnar með glóprik sem voru allsráðandi þarna á bæ, ég náði að detta niður stiga meistaralega, hitta helling af fólki og dansa og drekka meira. Jii minn eini, stemmningin þarna var ótrúleg, hvernig fólk hoppaði um og söng með, lög á borð við "I like to move it move it" og " No no no, THERES NO LIMITS!". Allir með glóprik. Glóprik í drykkjum, glóprik í hári, glóprik á milli brjósta, glópriks gleraugu voru samt það heitasta.

Stelpur, þið verðið að koma á næsta kvöld. Verðið. Ég gat ekki hætt að hugsa um hvað það væri nú aldeilis mikil fullkomnun á svona góðu kvöldi að hafa ykkur ALLAR.

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 09:48:03 / Lilja

afhverju

aaafhverju eru svona margirað versla í 10-11 akkúrat þennan morgun, af öllum, kommon. þetta er ekki gott fyrir sálartetrið mitt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 16:50:53 / Karen

Leyfið skvísunum að koma til mín...

Ég er ein heima, opið hús fyrir ykkur...



» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11